Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1524561942.88

    Starfsþjálfun rafeindavirkjun - C hluti
    STAÞ3RE10(CR)
    66
    Starfsþjálfun
    Starfsþjálfun rafeindavirkjun
    Samþykkt af skóla
    3
    10
    CR
    Lögð er áhersla á að nemendur geti unnið sjálfstætt að viðgerð, samsetningu og uppsetningu rafeindabúnaðar og geri sér grein fyrir hvort bilun tengist hugbúnaði eða vélbúnaði. Nemendur sýni leikni í starfi og hæfni í beitingu mælitækja og verkfæra. Nemendur læri sjálfstæð vinnubrögð, skilji mikilvægi góðrar framkomu og geti aðstoðað, unnið með og ráðlagt viðskiptavinum.
    STÞJ2RE20BR
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • flóknari rásateikningum.
    • hlutverkum og virkni helstu íhluta.
    • notkun mælitækja við bilanaleit.
    • tengingu rafeindabúnaðar við stjórn eða jaðarbúnað í lofti eða á kapli.
    • virkni þeirra tækja sem hann vinnur við.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna sjálfstætt og í hópvinnu við bilanagreiningu og lagfæringar.
    • finna bilanir í rafeindabúnaði og gera við á faglegan og ábyrgan hátt.
    • meta þörf á hýsingu rafeindabúnaðar gagnvart ytri aðstæðum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita rökhugsun við bilanagreiningu.
    • vinna sjálfstætt á vinnustað og forgangsraða verkþáttum.
    • leiðbeina viðskiptavinum um val og staðsetningu rafbúnaðar.
    • veita viðskiptavinum hámarksþjónustu.
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum meistara í viðkomandi grein.