Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1525252402.02

    Fagfræði, matseðlafræði
    FFMF2IB03
    3
    Fagfræði, matseðlafræði
    FFMF
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Í áfanganum tengir nemandi saman hugmyndavinnu og raunveruleg verkefni. Nemandi lærir á framleiðslustaðla og raunverulegan hráefniskostnað. Nemandi vinnur verkefni er tengjast undirbúningi verklegra kennslustunda þar á meðal uppsetningu matseðla og lögð er áhersla á að þeir skili lausnum sem byggja á skilgreindum tímamörkum verklegra kennslustunda. Nemandi eru hvattur til að þróa nýjar hugmyndir, byggðar á sígildri matreiðslu. Nemandi vinnur verkefni sem lúta að framsetningu rétta. Áfanginn er kenndur samhliða VMHE3IB08 og VMKA3IB08
    Námssamningur í matreiðslu.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • gerð matseðla
    • mikilvægi matseðils fyrir ímynd og gæðastefnu fyrirtækis
    • réttarheitum og geti búið til lýsandi matseðlatexta
    • sígildum matreiðsluaðferðum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna í hóp að skilgreindum verkefnum
    • nýta sér vinnuferla er stuðla að öryggi gestsins
    • útfæra nýjar hugmyndir sem byggjast á sígildri matreiðslu
    • stjórnað eldhúsi og unnið eftir fyrirfram gerðu vinnuskipulagi
    • semja matseðla sem er rekstrarlega hagkvæmir og faglega réttir
    • para hefðbundna réttarflokka og réttarheiti
    • áætla hráefni og magn fyrir tiltekið verkefni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • noti fyrirliggjandi þekkingu við úrlausnir verkefna og nýja nálgun þeirra
    • setja saman ýmsar tegundir matseðla
    • forgangsraða verkþáttum á skilvirkan hátt
    • skipuleggja vinnusvæði og framreiðsluferla með tilliti til þess hvert tilefnið er