Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1525252929.23

    Hráefnisfræði í matreiðslu
    HRFM2IB05
    3
    Hráefnisfræði matreiðslu
    HRFM
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Lögð er áhersla á innlenda vöru, mikilvægi og sérstöðu íslensks hráefnis. Fjallað er um meðferð á ferskvatnsfiski, skelfiski og lin- og krabbadýrum. Nemendur læra um sláturafurðir, uppbyggingu vöðva og nýtingu, meyrnun, hlutun og hagnýtingu. Fjallað er um heilbrigðismat og gæðaflokkun kjöts og alifugla ásamt meðferð á villibráð. Nemendi lærir um kryddjurtir og grænmeti, kornmeti og algengar tegundir ávaxta, flokkun þeirra, einkenni og notkun. Nemandi fræðist um erlendar sælkeravörur í víðasta skilningi. Fjallað er um gæði, notkun, innflutning og reglur sem um það gilda.
    Námssamningur í matreiðslu.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi og sérstöðu íslensks hráefnis
    • heilbrigðismati og gæðaflokkun á sláturafurðum
    • meðferð og meðhöndlun á sjávarfangi
    • mismunandi erlendum salt- og ferskvatnsfiskum
    • einkennum og notkun á kryddjurtum, grænmeti og ávöxtum
    • íslenskri og erlendri villibráð
    • reglum um móttökueftirlit
    • reglum sem eiga við um gæða- og heilbrigðismat
    • nýtingu á sælakeravörum
    • öllum helstu grunnhráefnaflokkum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meðhöndla ólík hráefni
    • greina virkni og tilgang grunnhráefna
    • hluta og hagnýta sláturdýr
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta fjölbreyttara grunnhráefni með hagkvæmum hætti
    • draga ályktanir um fjölbreyttari úrlausnir verkefna
    • skapa jákvætt viðhorf og virðingu fyrir Íslensku hráefni