Í áfanganum er farið í grunnmatreiðsluaðferðir, steikingu og suðu. Farið verður yfir notkun og umgengni á öllum helstu tækjum í eldhúsi. Nemandi být til öll helstu soð og fer yfir þá verkferla sem snúa að soðgerð ásamt grunnsósum. Í áfanganum er farið í gegnum innra eftirlit þar sem tekið er á móti vörum farið yfir nýtingu og rýrnun. Nemandanum er fylgt eftir í persónulegu hreinlæti og klæðarburði sem hentar hverju sinni. Einnig er lögð áhersla á frágang matvæla og matvælaöryggi. Í áfanganum er farið í grunnn aðferðafræði í eftirréttagerð. Farið er yfir beitingu hnífa og helstu skurði á grænmeti.
Grunnskólapróf, námssamningur í matreiðlsu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
almennum reglum við vörumótöku og frágang matvæla
öllum helstu tæki og handverkfæri í eldhúsi
helstu soðum og þeim verkferlum sem snúa að soðgerð
megin matreiðsluaðferðum með tilliti til hráefnis
persónulegu hreinlæti
umgengnisreglum Hótel- og matvælaskólans
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
taka á móti vörum
ganga frá vörum eftir faglegum hefðum
undirbúa vinnuaðstöðu
laga helstu soð og grunnsósur
beita sértækum vinnubrögðum, verkfærum og tækjum
ganga frá eldhúsi samkvæmt faglegum og/eða stöðluðum hefðum/kerfum, HACCP og gátlistum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja, útfæra og framkvæma grunnþætti í soðgerð
skipuleggja vinnusvæði og framreiðsluferla með tilliti til þess hvert tilefnið er
þróa kunnáttu og leikni í grunnmatreiðsluaðferðum
samþætta notkun tækja, áhalda, hráefnis- og verkferla í eldhúsi