Í þessum áfanga sækja nemendur sér reynslu og þekkingu á vinnumarkaði í samstarfi við aðila í atvinnulífinu. Nemendur þurfa að skila 100 klukkustunda vinnuframlagi á önn sem skiptist í viðveru á vinnustað og úrvinnslu í skólanum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
vinnumarkaði
þeim kröfum sem gerðar eru á vinnumarkaði
samskiptum við samstarfsfólk, yfirmenn sína og hlutverkum hvers og eins
réttindum og skyldum á vinnumarkaði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
átta sig á þeim kröfum sem gerðar eru á vinnumarkaði
greina samskipti við yfirmenn sína
þekkja hlutverk sitt á vinnustaðnum
vera góður starfskraftur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka þátt í atvinnulífi
lesa aðstæður á vinnumarkaði
gæta réttinda sinna
sinna skyldum sínum á vinnumarkaði
öðlast metnað til að standa sig vel í starfi
Leiðsagnarmat. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram.