Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur lesi fjölbreyttar bókmenntir. Nemendur velja af lista bókmenntaverk sem höfða til þeirra og setja sjálfir saman lesáætlun annarinnar í samráði við kennara.
Nemendur halda lesdagbók/vangaveltubók þar sem kemur fram hugleiðing þeirra og túlkun um bókmenntaverkin.
Gert er ráð fyrir að nemendur lesi 6 til 20 bækur, það fer eftir því hvers konar bækur þeir hafa valið á listann. Nemendur velja eitt verk til að leita heimilda og kynna sér sérstaklega.
Nemendur þjálfast í að fjalla um og kynna viðfangsefni sín munnlega. Nemendur gera grein fyrir öllum bókmenntaverkum í samtali við kennara.
Tveir skylduáfangar á öðru þrepi (10 einingar).
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
inntaki og einkennum þeirra verka sem lesin eru
grunnhugtökum í bókmenntafræði
orðaforða sem nægir til að fjalla um helstu bókmenntaverk
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa sér til gagns og gamans bókmenntaverk jafnt sem nytjatexta og fjalla um inntak þeirra
beita gagnrýninni hugsun við úrvinnslu
koma skoðunum sínum á framfæri á skýran og greinargóðan hátt
skilja og nota algeng stílbrögð og málsnið í tal- og ritmáli
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
flétta saman eigin viðhorf og ályktanir á heiðarlegan hátt
kynna af öryggi og túlka þær bókmenntir sem lesnar eru
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
túlka og bera saman bókmenntaverk
setja fram skýran og vel uppbyggðan texta
styrkja eigin málfærni og framsetningu talað máls
tjá rökstudda afstöðu
túlka texta og draga ályktanir af honum þó merkingin liggi ekki á yfirborðinu
Fjölbreytt námsmat sem byggir á prófum og verkefnum.