Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1527775056.37

    Kvennabókmenntir
    ÍSLE3KB05
    67
    íslenska
    Kvennabókmenntir
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur kynnist kvennabókmenntum frá öndverðu til dagsins í dag. Lesnar eru skáldsögur, smásögur og ljóð. Unnið er með fjölbreytt verkefni í ræðu og riti.
    Tveir skylduáfangar á 2. þrepi (10 einingar).
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • inntaki og einkennum þeirra verka sem lesin eru
    • ritgerðarsmíð og heimildavinnu
    • helstu bókmenntahugtökum sem tengjast kvennabókmenntum
    • sögu kvenna í íslenskum bókmenntum
    • áhrifum kvenna á íslenskar bókmenntir
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skrifa ritgerðir þar sem beitt er gagnrýninni hugsun við úrvinnslu
    • koma efni á framfæri á skýran og vandaðan hátt á blæbrigðaríku máli
    • ganga frá texta til birtingar
    • nýta sér uppbyggilega gagnrýni annarra
    • skilja og nota viðeigandi stílbrögð og menningarlegar vísanir í tal- og ritmáli
    • nýta eigin sköpunargáfu
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
    • skilgreina lykilhugtök
    • greina mismunandi sjónarmið
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • túlka og bera saman bókmenntaverk og setja þau í sögulegt samhengi
    • skrifa skýran og vel uppbyggðan texta
    • velja ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum
    • leggja mat á og efla eigin málfærni
    • tjá rökstudda afstöðu og geta tekið virkan þátt í umræðum
    • átta sig á samfélagslegum skírskotunum
    Fjölbreytt námsmat sem byggir á prófum og verkefnum.