Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1527776667.6

    Bókvit - grunnþættir bókmennta
    ÍSLE2BV05
    47
    íslenska
    Bókmenntir á fyrri og seinni tímum
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Nemendur kynnast menningu og menningarheimi Þjóðveldisaldar með lestri bókmennta og ýmis konar verkefnavinnu, verklegri, munnlegri og skriflegri. Farið er fram á sjálfstæð og vönduð vinnubrögð.
    Bókmenntir/ritun: Nemendur lesa nokkur lykilverk bókmennta fyrri og seinni tíma.
    Málnotkun: Nemendur temja sér gott og fjölbreytt mál/málfar og efla eigin málfærni.
    Framsögn: Nemendur taka virkan þátt í umræðum og þjálfa rökstuðning.
    Lágmark B á grunnskólaprófi eða hafa lokið 1.þrepi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - bókmenntum í lausu og bundnu máli
      - átta sig á menningararfinum og áhrifum hans
      - hvernig þessi arfur skilar sér inn í menningu og listir í nútímanum
      - orðaforða sem nægir til að geta lesið helstu lykilverk bókmennta
      - grunnhugtök í bókmenntfræði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - lesa bókmenntaverk sér til gagns og gamans og fjalla um inntak þeirra
      - beita gagnrýninni hugsun við vinnslu verkefna þar sem skoðanir hans koma fram
      - nota á markvissan hátt viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða
      - draga saman og nýta upplýsingar úr ýmiss konar heimildum og tengja við eigin skoðanir
      - flytja af nokkru öryggi mál sitt frammi fyrir hópi fólks
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - vinna skapandi verkefni í tengslum við námsefnið
      - greina þær breytingar í máli sem orðið hafa frá ýmsum textum sem til eru frá víkingatímanum til nútímamáls
      - beita skýru og lýtalausu máli í ræðu og riti
      - taka þátt í málaefnalegum umræðum og byggja upp skýra röksemdafærslu
      - tjá afstöðu og efasemdir um efni og komast að niðurstöðu
      - túlka bókmenntatexta og kafa undir yfirborð hans
    Fjölbreytt námsmat sem byggir á prófum og verkefnum bæði munnlegum og skriflegum.