Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1528185887.54

    Verkleg og bókleg færniþjálfun í matvælagreinum
    VBFM1VA12
    4
    Verkleg og bókleg færiniþjálfun í matvælagreinum
    VBFM
    Samþykkt af skóla
    1
    12
    Í framreiðslu er farið í þjálfun á grunnþáttum framreiðslustarfsins svo sem móttöku og samskipti við gesti. Borðauppröðum, þekkingu á öllum helstu hnífapörum, munnþurrkubrotum og dúkastærðum. Grunnþáttum borðlagningar og sölumennsku fyrir grunnmatseðla, samkvæmt fagvenjum og framreiðsluaðferðum. Nemendum kennd umgegni við mismunandi búnað tengt framreiðslustarfinu og frágang á honum að notkun lokinni. Nemendur kynnast fyrirskurði-og eldsteikingingu, vinnu í vínstúku áhaldaþekkingu og aðferðafræði starfs framreiðslumanna. Í matreiðslu er farið yfir allar steikingar og suðu aðferðir. Farið er yfir notkun og umgengni á öllum helstu tækjum í eldhúsi. Nemandi býr til soð og fer yfir þá verkferla sem snúa að soðgerð ásamt kynningu grunnsósum. Í áfanganum er farið í gegnum innra eftirlit HACCP og hvernig tekið er á móti vörum og nemendum gerð grein nýtingu og rýrnun . Nemandanum er fylgt eftir í persónulegu hreinlæti og klæðarburði sem hentar hverju sinni. Einnig er lögð áhersla á frágang matvæla og matvælaöryggi. Í áfanganum er farið í grunnn aðferðafræði í eftirréttagerð. Farið er yfir beitingu hnífa og helstu skurði á grænmeti. Nemendum gerð grein fyrir siðareglum í matvælagreinum.
    Að hafa lokið grunnskólaprófi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • starfi framreiðslu- og matreiðslumanna og því umhverfi sem störfin fara fram í persónulegu hreinlæti og gildi þess í matvælagreinum
    • hvað felst í störfum framreiðslu- og matreiðslumanna og möguleikum sem þau bjóða upp á til frekara starfs
    • áhöldum og tækjum sem notuð eru í ferða- og matvælagreinunum og notkunarmöguleika þeirra
    • góðum siðum er varða umgengni við gesti og samstarfsfólk
    • grunnþáttum í framreiðslu mismunandi rétta á veitingastað
    • grunnþáttum í eldun einfaldra rétta í samræmi við verklagsreglur
    • notkun uppskrifta og uppskriftabóka í matreiðslu
    • réttindum og skyldum starfsmanna
    • innkaupum matvara og annarra aðfanga
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • leggja lín á borð og brjóta munnþurrkur
    • annast grunnborðlagningu
    • elda og framreiða einfalda hádegisverðarrétti
    • vinna einföld verkefni í framreiðslu og matreiðslu
    • umgangast tæki sem notuð eru í veitingasal, eldhúsum veitingastaða og kunna rétta notkun þeirra
    • notkun á mismunandi hnífum við störf í matreiðslu
    • skera grænmeti fyrir mismunandi rétti
    • grunnverkun á fiski, beinhreinsun og roðflettingu
    • matreiða súpur og sósur frá grunni
    • raða mat á matarfat og diska eftir réttum faglegum hefðum
    • binda upp kjöt fyrir steikingu
    • umgangast gesti og samstarfólk við störf í matvælagreinum
    • að leita hagstæðra innkaupa á matvörum
    • að þekkja réttindi og skyldur starfsmanna á vinnustað
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • afla sér frekari þekkingar í ferða- og matvælagreinum
    • geta unnið einföld grunnstörf í framreiðslu og matreiðslu
    • hafa skilning á því til hvers er ætlast í störfum framreiðslu- og matreiðslufólks
    • vinna með helstu áhöld og tæki sem notuð eru við störf í framreiðslu og matreiðslu
    • að hafa þekkingu á magntöku hráefnis og hagkvæmni í innkaupum
    • gæta að eigin hreinlæti og því hreinlæti sem kröfur eru gerðar um í matvælagreinum, (HACCP)
    • þekkja hlutverk fyrirtækja gagnvart starfsmönnum m.t.t. kjaramála
    Verkefni og próf