Nemendur kynnast störfum í matreiðslu og framreiðslu á vinnustöðum og í atvinnulífi, í hverju störfin eru fólgin og við hvaða aðstæður þau fara fram. Kynnt er fyrir nemendum mikilvægi samskipta við samstarfsfólk og viðskiptavini. Nemendur fá verklega þjálfun í helstu grunnþáttum starfa í matvæla- og ferðagreinum.
Að hafa lokið grunnskólaprófi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi störfum í matvæla- og ferðagreinum, í hverju þau eru fólgin og hvar þau fara fram
fjölbreytni starfa í matvæla- og ferðagreinum
hvernig návígi við viðskiptavini er háttað í störfum í matvæla- og ferðagreinum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna við mismunandi störf í matvæla- og ferðagreinum
bregðast við þeim kröfum sem gerðar eru til starfa í matvæla- og ferðagreinum
umgangast viðskiptavini á faglegan og viðurkenndan hátt
annast helstu grunnstörf í matvæla- og ferðagreinum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
takast á við margbreytileg störf í matvæla- og ferðagreinum
umgangast viðskiptavini á viðurkenndan hátt
vinna við öll grunnstörf er tengjast matvæla- og ferðagreinum og gera sér grein fyrir þeim kröfum sem gerðar eru til starfsmanna