Áhersla er á lýðræði og mannréttindi og aðstæður og umhverfi ungs fólks skoðað í fjölbreyttu samhengi. Nemandinn er hvattur til að velta fyrir sér hugtakinu lýðræði og taka afstöðu til siðferðilegra álitamála, s.s. mannréttinda, samábyrgðar, meðvitundar og virkni borgara við að móta samfélag sitt og hafa áhrif á það.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hugtökunum lýðræði og mannréttindi
mikilvægi sjálfstæðis og sjálfsábyrgðar í lýðræðissamfélagi
að allir hafa hæfileika og þroskamöguleika
að í lýðræðisríki þurfa borgarar að búa við mannréttindi og komast að samkomulagi
fjölbreytileika
eigin tilfinningum og skoðunum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita gagnrýninni hugsun
virða skoðanir annarra
taka þátt í umræðum
láta skoðanir sínar í ljós
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja þá hugsun sem felst í hugtökunum lýðræði og mannréttindi
spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
átta sig á tengingu á milli réttinda og skyldna
átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi menningarheimum
taka þátt í lýðræðissamfélagi á virkan og ábyrgan hátt
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.