Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1528889232.52

    Rafmagnsfræði 3
    RAMV2RS05(FV)
    13
    Rafmagnsfræði
    rafkerfi, rafteikningar, staðlar og reglugerðir
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    FV
    Lögð er áhersla á að nemendur fái þjálfun í reikningum á RLC-rásum varðandi riðstraumsviðnám, samviðnám, spennuföll og fasvik bæði í hliðtengdum og raðtengdum rásum. Læri um desebel útreikninga og notkun þeirra. Læri um helstu síur og hvernig hægt er að búa þær til úr RLC-rásum og framkvæma reikninga á þeim. Auk þess skulu nemendur kynnast umhverfisháðum viðnámum og táknum fyrir þau. Nemendur framkvæma einnig mælingar á síum og öðrum RLC rásum bæði með hjálp mælitækja og hermiforrits
    RAMV2ÞS05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvernig riðstraumsrásir með spólum og þéttum hegða sér við breytilega tíðni
    • virkni helstu sía
    • virkni umhverfisháðra viðnáma
    • desebel útreikningum og logarithmiskum kvarða
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • framkvæma alla helstu reikninga í rað- og hliðtengdum RLC – rásum
    • segja til um hvernig viðám og fasvik svona rása breytist með tíðni
    • tengingum og mælingar á RLC – rásum
    • útreikningi/hönnun á einföldum síum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tengja eftir teikningu og mæla í RLC – rásum bæði raðtengdum og hliðtengdum
    • hanna einfaldar síur með þéttum viðnámum og spólum og gera á þeim mælingar
    • gera mælingar á RLC – rásum yfir ákveðið tíðnisvið
    • setja niðurstöður fram í desebelum og í logaritmiskum kvarða
    • nýta sér hermiforrit til mælinga á rásum
    • setja niðurstöður mælinga fram í skýrsluformi
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.