Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1528894036.09

    Forritanlegar raflagnir
    FRLV3DE05
    3
    Forritanleg raflagnakerfi
    Dali, EIB, hönnun
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    FV
    Í áfanganum kynnast nemendur forritanlegum hússtjórnarkerfum. Farið er uppbyggingu á DALI og Funk-bus hústjórnarkerfum og hönnun þeirra. Nemendur læra uppsetningu kerfa ásamt efnisvali og möguleikum búnaðar til stjórnunar rafkerfa í flestum tegundum bygginga. Farið er í virkni einstakra íhluta og þeir tengdir og forritaðir þannig að nemendur fá þjálfun í að vinna sjálfstætt við uppsetningu og virkjun búnaðar og séu færir um að leiðbeina öðrum um notkun hans. Nemendur læra á viðeigandi forrit til að virkja búnaðinn ásamt frágangi á tæknilegum skjölum. Nemedur útbúa handbækur um kerfin.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu möguleikum forritanlegra hússtjórnarkerfa.
    • íhlutum hússtjórnarkerfa og vera fær um að tengja og virkja búnaðinn
    • möguleikum á samtengingu mismunandi hússtjórnarkerfa við lausn verkefna.
    • frágangi tæknilegra skjala og teikninga
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • leggja og tengja raf og samskiptalagnir
    • skipuleggja og ganga frá skjölum ásamt lagnateikningum hússtjórnarkerfa.
    • tengja og ganga frá búnaði
    • forrita og virkja búnað
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • ráðleggja verkkaupa um uppbyggingu mismunandi forritanlegra hússtjórnarkerfa og útskýra virkni einstakra íhluta við lausnir verkefna
    • tengja og virkja búnað
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá FVA.