Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1528896780.43

    Lokaverkefni
    VLVV3LR09(FV)
    4
    Valið lokaverkefni brautar
    lokaverkefni rafvirkja
    Samþykkt af skóla
    3
    9
    FV
    Í þessum áfanga vinna nemendur lokaverkefni þar sem þeir nýta þekkingu og færni sem þeir hafa aflað sér í hinum ýmsu þáttum námsins. Nemendur velja verkefni í samvinnu við kennara í upphafi annar og gera því næst verk- og kostnaðaráætlanir og önnur gögn er verkið varða. Æskilegt er að verkefni tengist atvinnulífinu og sé unnið í samstarfi við fyrirtæki en það getur einnig verið hreint skólaverkefni sem tengist vinnu nemenda í öðrum áföngum. Í upphafi áfanga er mikilvægt að nemendur fái sameiginlega kynningu á aðferðafræði verkefnavinnunnar og þeim kröfum sem skólinn gerir varðandi gæði verkefna, faglega breidd og dýpt, umfang, efnistök, framsetningu og frágang. Gert er ráð fyrir að nemendur vinni ýmist einir eða tveir saman að lokaverkefni. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og ábyrgð nemenda en nauðsynlegt er að þeir hafi aðgang að kennurum og e.t.v. einnig aðilum í atvinnulífinu sem gætu veitt leiðsögn í verkefnavinnunni. Í lok áfangans leggja nemendur fram verkefni sín og kynna þau innan skólans.
    Áfanginn er tekinn á seinustu önn í náminu
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • vinnubrögðum við undirbúning og framkvæmd sjálfstæðrar verkefnavinnu
    • öryggis- og reglugerðarákvæðum sem verkið varða
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • gera vinnulýsingar og vinnuteikningar
    • framkvæma viðeigandi prófanir og mælingar vegna verkefnisins
    • velja efni, búnað og aðferðir við hæfi
    • skrifa greinargóða skýrslu um verkefni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • afla sér viðeigandi upplýsinga og nýta sér leiðsögn og ráðgjöf annarra
    • útfæra og vinna eftir verkáætlun, vinnulýsingu, teikningum o.s.frv.
    • gera öðrum grein fyrir verkefni sínu, kynna það og útskýra einstaka þætti þess
    • setja sér markmið og gera verk- og kostnaðaráætlanir
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.A