Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1528966890.8

    Raflagnir 5
    RALV3IT05(FV)
    13
    raflagnir
    iðnaðarveita, raflagnir, töflusmíði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    FV
    Í áfanganum er lögð áhersla á minni húsveitur fyrir allt að 100 A. Heimtaugum að einbýlis- og fjölbýlishúsum og helstu raflögnum og búnaði fyrir ljósa og tenglagreinar. Áhersla er lögð á kunnáttu á varnarráðstöfunum í stærri húsveitum og farið vel í öryggismál. Farið verður í sérákvæði varðandi raflagnir í einstökum rýmum og staðsetningu á rafdreifiskápum. Sett verður upp aðaltafla, lagnir frá henni m.a. að þriggja fasa hreyfli. Gerða verða mælingar og kostnaðaráætlanir. Nemendur gera efnis- og kostnaðaráætlun.
    RALV2RT05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • uppbyggingu og virkni varnarráðstafana
    • öryggismælingum á húsveitu
    • reglugerðarákvæðum og stöðlum varðandi neysluveitur
    • mismunandi lágspennu kerfum
    • uppbyggingu aðal- og greinatafla.
    • hvernig öryggismælingar eru framkvæmdar og virkni helstu mælitækja
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tengja heimtaugar við húsveitur upp að 100 Amper.
    • setja upp og tengja aðaltöflu upp að 100 Amper.
    • ganga frá stýringu og tengja þriggja fasa hreyfil.
    • framkvæma öryggismælingar á húsveitu.
    • vinna með staðla og reglugerðir.
    • tengja þriggja fasa tengla og klær.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • ákveða stærð aðaltöflu
    • mæla hringrásarviðnám, einangrunarviðnám og fasaröðun
    • gera úttektarskýrslu
    • ákvarða röðun búnaðar í aðaltöflu
    • skila verkinu fagmannalega frá sér
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.