Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1528973755.27

    Starfsþjálfun 2
    STAÞ2SR20(fv)
    55
    Starfsþjálfun
    starfsþjálfun í rafvirkjun
    Samþykkt af skóla
    2
    20
    fv
    Nemanda eru kynntar allar öryggiskröfur á vinnustað og mikilvægt er að hann skilji mikilvægi þeirra. Honum skal gerð grein fyrir þeim hættum sem geta verið samfara vinnu við rafmagn. Nemandi skal læra meðhöndlun og beitingu allra handverkfæri sem nota þarf við rafvirkjastörf. Mikilvægt er vinnubrögð hans séu fagmannleg frá upphafi. Hann á að geta unnið sem aðstoðarmaður rafvirkja og geta framkvæmt einfaldar tengingar. Nemandi skal með mælitækjum geta fundið út hvort lagnir séu spennu hafandi, til að forðast slys.
    Starfsþjálfun 1
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • öryggiskröfum og öryggi á vinnustað
    • vali á búnaði til nota í raflögnum
    • mikilvægi fagmannlegra vinnubragða og vandvirkni
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meðhöndla og beita handverkfærum og mælitækjum sem þarf að nota við rafvirkjastörf
    • leggja og tengja raflagnir á fagmannlegan hátt
    • vinna í hópi að sameiginlegu markmiði
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna eftir fyrirmælum sem aðstoðarmaður rafvirkja við allar almennar raflagnir.
    Námsmat er í höndum viðkomandi rafvirkjameistara.