Nemandinn lærir grunnatriði við smíði rafeindarása. Hann fær upplýsingar um efnisfræði íhluta rafeindatækninnar og virkni þeirra. Nemandinn lærir að beita helstu verkfærum eins og lóðbolta, tinsugu, bítara, járnsög, klippum, skrúfjárni og skiptilykli. Nemandinn smíðar einfaldar rafeindarásir og fær þjálfun í að beita verkfærum og gera mælingar á rásinni. Lögð er áhersla á að nemandinn styrkji hæfni sína til mælinga á spennu, viðnámi og straum í tengslum við rafmagnsfræði.
engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
virkni lóðbolta og mikilvægi hitastigs
efnisfræði íhluta
leiðni mismunandi efna
myndun tæringar og spennu milli efna
hvernig meðhöndla skal verkfæri
hvernig meðhöndla skal AVO mæla
helstu gerðum prentplatna
helstu atriðum varðandi öryggi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
stilla og hreinsa lóðbolta
lóða rafeindarás án kaldra lóðninga
nota tinsugu eða tinhreinsivír
bora með fjölhraða borvél
beygja og fella íhluti í prent svo vel fari
nota helstu málmsmíðatæki
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
setja upp og lóða einfalda rafeindarás á prentplötu