Í áfanganum lærir nemandinn að beita rásahermiforritum til að teikna og prófa einfaldar rafeindarásir. Nemandinn gerir jafnframt allar mælingar í slíkum forritum, smíðar rás, prentplötu og setur rásirnar saman og kannar virkni hennar. Unnið er að smíði stærri rafeindatækja.
VGRV2RS03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
virkni rásahermiforrita
virkni helstu íhluta
hvernig koparprentrásir eru ætaðar
forritum til að teikna prentrásir
forritum sem teikna rafeindarásir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með og prófa rásir í rásahermum
snúa skematískum teikningum yfir á prent
mæla og prófa rásir bæði í rásahermi og raunrás
ganga frá rafeindabúnaði í tækjakassa
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
teikna rafeindarás í rásahermi og láta rásina virka