Nemendur öðlast verklega þjálfun við hárfjarlægingu með mismunandi gerðum af vaxi á utanaðkomandi módelum. Áhersla er lögð á að nemendur öðlist verklega færni og sýni sjálfstæð vinnubrögð við meðhöndlun og ráðleggingar til viðskiptavina. Nemendur læra að vinna markvisst að verkþáttum þannig að fram komi verkskipulagning, tækni, hraði og leikni í vinnubrögðum. Þeir þjálfast í að greina þarfir viðskiptavina og veita þjónustu í samræmi við þær. Ráðleggja þeim með markvissum hætti, um notkun snyrtivara og þá meðhöndlun í hárfjarlæginu sem í boði er á snyrtistofum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi vaxi sem er í boði á hverjum tíma, innihaldi þess, áhrifum á húðina og mismunandi verktækni við meðhöndlun hára
virkni og innihaldi efna sem eru notuð fyrir og eftir vaxmeðferða og á milli meðferða heimafyrir
frábendingum varðandi vaxmeðferð og varúðarráðstöfunum sem þarf að framfylgja í kjölfar meðferðar
mikilvægi hreinlætis og sótthreinsunar í og eftir vaxmeðferð
hve háttvísi í framkomu er mikilvæg og hæfni í móttöku viðskiptavina með faglegum hætti
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
sýna sjálfstæð vinnubrögð og vinna þá verkþætti sem þeir hafa tileinkað sér í áfanganum HÁRE2BA04
greina þarfir viðkomandi og velja meðhöndlun, efni og gefa ráðleggingar sem við á
vinna innan þeirra tímamarka sem til er ætlast
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sýna og hafa skilning á vönduðum sjálfstæðum vinnubrögðum og háttvísri og fagmannlegri framkomu
geta valið rétta meðferð, vaxgerðir og efni sem henta viðskiptavini
geta leiðbeint viðskiptavini varðandi það sem er í boði í hárfjarlægingu og varanlegri háreyðingu
sýna fagmannleg og sjálfstæð vinnubrögð í að setja upp vinnuaðstöðu, geta sótthreinsað á viðeigandi hátt og viðhaft sótthreinsun í meðferðinni
gefa ráðleggingar sem henta viðskiptavini
Símat sem samanstendur af vinnueinkunn í áfanganum