Í þessum áfanga eru tekin til skoðunar sólkerfið, sólin og stjörnur almennt, vetrarbrautir og loks heimsfræði. Lögð er áhersla á notkun stærðfræðilegra aðferða við greiningu þessara fyrirbæra.
EÐLI3RA05 eða EÐLI4A050
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
reikistjörnum sólkerfisins og tunglum þeirra
sólinni og myndun sólkerfisins
myndun, lífi og dauða stjarna
helstu gerðum stjarna, nifteindastjörnum, hvítum dvergum og svartholum
helstu gerðum vetrarbrauta, þróun þeirra og uppbyggingu
grundvallaratriðum í heimsfræði, s.s. upphafi og þróun heimsins og lýsingu hans út frá afstæðiskenningunni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita stærðfræðilegum aðferðum til þess að svara einföldum spurningum er varða efni áfangans
greina frá helstu efnistökum áfangans í ræðu og riti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
miðla helstu efnisatriðum áfangans
þekkja stað mannsins í alheiminum
nýta hæfni sína í áfanganum til frekara náms í raunvísindum
Námsmat er tilgreint í kennsluáætlun og samræmist skólanámskrá.