Fjallað er um grundvallaratriði tvíhliða bókhalds. Nemandanum er gerð grein fyrir hlutverki bókarans og tilgangi bókhaldsins. Algengustu reikningar eru kenndir fyrst og flokkun þeirra í eignir, skuldir, gjöld og tekjur. Farið í dagbókarfærslur, prófjöfnuð, opnun og lokun höfuðbókar, tengsl hennar við dagbók og gerð efnahags- og rekstrarreiknings. FOB og CIF skilmálar útskýrðir og munurinn á eðli sölu- og innkaupakostnaðar. Farið yfir reglur um virðisaukaskatt og hvernig þeim er beitt í bókfærslunni. Unnið með uppgjör virðisaukaskatts og uppgjörsfærslur, launaútreikninga og launatengd gjöld. Kynnt er tölvubókhald, bókhaldslyklar, fylgiskjöl og varðveisla þeirra og annara bókhaldsgagna. Farið í afstemmingar og leiðréttingafærslur og lögð áhersla á að nemandinn geti gert grein fyrir ofantölum þáttum og greint bókhaldslegar upplýsingar. Fjallað er um uppsetningu ársreikninga og helstu kennitölur. Hvernig lesa á úr ársreikningum til að geta metið stöðu fyrirtækja út frá honum. Lögð áhersla á að nemandinn læri hvar hann getur leitað sér þekkingar um bókhaldstengd málefni og ráðgjöf. Mikil áhersla er lögð á vönduð vinnubrögð nemanda og góðan frágang.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnhugtökum bókfærslu og bókhaldsjöfnunni.
helstu lögum um bókhald.
sambandi dagbókar, höfuðbókar, reikningsjafnaðar og efnahags- og rekstrarreiknings.
þekki flokkun, merkingu og varðveislu fylgiskjala.
tölvubókhaldi og reglum þar að lútandi.
mikilvægi afstemminga við uppgjör.
ársreikningum og helstu kennitölum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
færa dagbókarfærslur og stilla upp prófjöfnuði.
setja upp reikningsjöfnuð, efnahags- og rekstrarreikning.
gera upp viðskipti fyrir ákveðið tímabil með athugasemdum.
gera upp virðisaukaskatt og útbúið virðisaukaskattskýrslur.
skrá, bóka og bakfæra fylgiskjöl.
útbúa launaseðla og skilagreinar launatengdra gjalda.
lesa úr ársreikningum.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta niðurstöður dagbókar og reikningsjafnaðar til að leggja mat á rekstur fyrirtækisins.
geti greint upplýsingar úr bókhaldinu og nýtt sér þær til markvissrar upplýsingaöflunar og skýrslugerðar.
geti nýtt sér upplýsingasíður á netinu um bókhald og ráðgjöf varðandi það.
geti dregið saman upplýsingar til uppgjörs hjá endurskoðanda.
geti nýtt sér ársreikninga til að meta stöðu fyrirtækja.
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.