Nemandi kynnir sér kröfur um öryggi og vinnuvernd eins og þær eru skv. lögum. Nemandi á að öðlast góðan skilning á skyldum verkkaupa og verktaka varðandi vinnuvernd og öryggisþætti. Þekki hlutverk samræmingaraðila á hönnunar- og framkvæmdarstigi og geti unnið að öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir vinnustað þ.m.t. áhættumat fyrir varasama verkþætti. Í áfanganum vinnur nemandi að öryggis- og heilbrigðisáætlun fyrir gefna framkvæmd í sínu fagi og kynnir rökstuddar niðurstöður.
Nemanda skal vera ljóst mikilvægi umhverfisverndar og sjálfbærni í starfi sínu og geti sett niður stefnu fyrirtækisins og markmið í þeim málum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
skyldum atvinnurekenda og verktaka í vinnuverndarmálum
þeim kröfum sem gerðar eru til atvinnurekenda skv. lögum varðandi vinnuumhverfi
hlutverki samræmingaraðila á hönnunar- og framkvæmdarstigi
mikilvægi öryggis- og heilbrigðisáætlana
mikilvægi áhættumats fyrir varasama verkþætti
mikilvægi öryggishandbókar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
þekkja kröfur og skyldur varðandi vinnuvernd og öryggismál.
finna nauðsynlegar þekkingu varðandi vinnuverndar- og öryggismál.
finna leiðir til að bæta vinnuumhverfi fyrirtækisins og gera það umhverfisvænna.
leita leiða til að auka sjálfbærni fyrirtækisins.
miðla þekkingu um vinnu-, öryggis- og umhverfisvernd á vinnustað
gera áhættumat.
meta árangur af umhverfisstefnu fyrirtækisins.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hrinda í framkvæmd stefnu í vinnu-, öryggis- og umhverfisvernd innan fyrirtækis og meta framvindu hennar reglulega.
geta nýtt þekkingu sína til úrlausna á þáttum er varða vinnu-, öryggis- og umhverfisvernd.
geta rökstutt úrlausnir sínar.
meta nauðsynlegar forvarnir eftir umfangi verka.
þekkja kröfur og skyldur varðandi vinnuvernd og öryggismál.
finna nauðsynlegar þekkingu varðandi vinnuverndar- og öryggismál.
finna leiðir til að bæta vinnuumhverfi fyrirtækisins og gera það umhverfisvænna.
leita leiða til að auka sjálfbærni fyrirtækisins.
miðla þekkingu um vinnu-, öryggis- og umhverfisvernd á vinnustað
gera áhættumat.
meta árangur af umhverfisstefnu fyrirtækisins.
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá VMA.