Heilbrigðisfræði með áherslu á persónulegt hreinlæti
HBFR1PH05
23
heilbrigðisfræði
Persónulegt hreinlæti
Samþykkt af skóla
1
5
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Lögð er áhersla á að nemandinn öðlist grunnþekkingu í heilbrigðisfræði með áherslu á persónulegt hreinlæti. Unnið verður með þætti sem auka færni nemandans í að taka ábyrgð á eigin líkama og líferni.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Persónulegu hreinlæti og miklvægi þess í daglegu lífi
Samspili hreinlætis og líðan almennt
Hvað felst í því að taka ábyrgð á eigin hreinlæti og snyrtimennsku
Áhrifum lifnaðarhátta á líðan
Sjálfum sér sem kynveru og ábyrgðinni sem því fylgir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Stunda ábyrga lífshætti
Þekkja helstu þætti er varða persónulegt heilbrigði
Þekkja og greina hollar lífsvenjur og næringu
Þekkja eigin líkama og taka mark á skilaboðum frá honum
Að sinna eigin hreinlæti
Viðhafa ábyrga kynhegðun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Að bera ábyrgð á eigin lífi
Viðhafa persónulegt hreinlæti
Viðhalda almennri vellíðan
Viðhalda og bæta eigin heilsu
Stunda hollt líferni
Stunda ábyrga kynhegðun
Námsmatið getur verið fjölbreytt og einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.