Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Sérstök áhersla verður á undirstöðuatriði í heimilisstörfum. Viðfangsefnið verður nálgast á fjölbreyttan hátt, farið verður í verklega æfingar ásamt því verða nemendur hvattir til að miðla reynslu sinni.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Mikilvægi þess að allir taki þátt í heimilisstörfum
Helstu áhöldum, verkfærum og heimilistækjum við þrif
Að nota hreinlætisvörur í hófi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Sópa og skúra gólf
Ryksuga
Taka úr og setja í uppþvottavél
Taka úr og setja í þvottavél
Taka úr og setja í þurrkara
Strauja
Brjóta saman þvott
Þurrka af
Pússa gler
Ganga frá
Vaska upp
Þrífa baðherbergi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Greina hvenær viðeigandi er að sinna heimilisþrifum
Gera áætlun um heimilisstörf
Nýta sér viðeigandi heimilistæki
Fara eftir almennum öryggisatriðum við heimilisþrif
Þekkja og geta nýtt sér viðeigandi hreinlætisvörur
Námsmatið er einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og próf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.