Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið er með mismunandi form og línur á mismunandi pappír með fjölbreyttum verkfærum á fjölbreyttan hátt.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Áferð mismunandi efna
Mismunandi formum
Mismunandi verkfærum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Að vinna verk með mismunandi aðferðum
Að nota blýant, krít, túss, kol, blek, og pensla
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Nýta tómstundir sér til gagns og ánægju til að vinna með mismunandi form
Nýta tómstundir sér til gagns og ánægju til að vinna með mismunandi efni
Sækja áframhaldandi nám á sviði myndlistar eða stök námskeið sér til gagns og ánægju
Námsmatið getur verið fjölbreytt og einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil.