Áfanganum er ætlað að veita innsýn inn í verklegt nám. Þar gefst nemendum kostur á vinna að eigin verkefnum í samráði við kennara. Kynntar verða ýmsar aðferðir við hugmyndavinnu, einfalda vinnuferla og verklag. Reynt verður að byggja á styrkleikum og áhugasviði hvers nemanda. Lögð er áhersla á að verkefni séu raunveruleg og hafi áþreifanleg lokamarkmið. Reynt verður eftir föngum að tengja ýmsar aðrar námsgreinar inn í vinnuna með það að markmiði að þjálfa yfirfærslu þekkingar og heildræna sýn. Nemendur halda ferlimöppu yfir vinna sína í áfanganum, og skrásetja vinnu sína m.a. í gegnum skissur og ljósmyndir. Nemandi skal skila inn upplýsingum um vinnu sína og framvindu verkefna vikulega og byggja þannig upp ferlimöppuna jafnt og þétt yfir spönnina.
Engar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
notkun einfaldra verkfæra
helstu eiginleikum og notkunarmöguleikum algengra efna
skrásetningu ferla í gegnum ljósmyndir/kvikmyndir
uppbyggingu einfaldra hugmyndabanka
hvernig gera má nýja hluti úr eldri hlutum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera einfalda verk/tíma/kostnaðaráætlun
fylgja einfaldri verk/tíma/kostnaðaráætlun
sinna verklegu námi
beita lausnaleitaraðferðum (e. Problem solving)
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera sér betur grein fyrir sínu áhugasviði og þeim styrkleikum í því felast
nýta sér þá þekkingu sem hann býr yfir
yfirfæra þekkingu og beita á nýjar aðstæður
þjálfa sköpunarhæfileika sína
sjá möguleika í endurnýtingu hluta
bregðast við óvæntum áhrifaþáttum í verkáætlun
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.