Mengi, algebra, veldi, rætur, hornafræði, línur og rúmfræði.
Nemendur hafi tileinkað sér grunnskólanámsefni í stærðfræði.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mengjahugtökum og mengjaaðgerðum.
algebru, svo sem liðun, þáttun og styttingu brota, veldum og rótum.
hvernig hægt er að leysa orðadæmi með jöfnum og jöfnuhneppum.
eiginleikum beinnar línu í hnitakerfi, svo sem hallatölu og skurðpunktum við ása hnitakerfisins og skurðpunkts tveggja lína.
línulegum líkönum og myndrænum lausnum jöfnuhneppa.
Pýþagórasarreglunni og ýmsum rúmfræðireglum.
hornaföllum í rétthyrndum þríhyrningi.
kröfum um stærðfræðiþekkingu á nokkrum ólíkum námsleiðum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota mengjatákn.
liða, þátta og stytta algebrubrot, reikna veldi og rætur.
nota Pýþagórasarregluna og ýmsar rúmfræðireglur.
setja fram línuleg líkön og vinna með þau.
beita hornaföllum í rétthyrndum þríhyrningi.
nota reiknivélar af öryggi og að beita þeim við útreikninga og til að leysa jöfnuhneppi .
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk í mæltu máli eða myndrænt.
setja sig inn í og túlka röksemdir annarra.
skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu.
vita hverskonar spurningar leiða til stærðfræðilegra viðfangsefna, spyrja slíkra spurninga og gera sér grein fyrir hver hugsanleg niðurstaða geti orðið.
beita skipulegum aðferðum við leit að lausnum á þrautum úr kunnuglegu samhengi og útskýra aðferðir sínar og lausnir.
klæða hversdagsleg verkefni í stærðfræðilegan búning, leysa þau og túlka.
skilja röksemdir í mæltu máli og í texta og beita einföldum röksemdum.
átta sig á gildi stærðfræðinnar í öðrum námsgreinum svo sem náttúrufræði.
Námsmat byggir á frammistöðu á mismunandi verkefnum og vinnu yfir önnina. Vinna yfir önnina samanstendur af verkefnavinnu, tímaæfingum (prófum) og heimaverkefnum.