Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1536062583.99

    Afbrigðileg sálfræði
    SÁLF3AF05
    24
    sálfræði
    geðheilsa, geðraskanir, streita, tilfinningar
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áfanginn fjallar um geðheilsu og geðræn vandamál. Fjallað er um almennt geðheilbrigði og geðrækt bæði út frá sálfræðilegum kenningum og læknis­fræðilega líkaninu. Lögð er áhersla á að nemendur átti sig á samspili líkam­legra og andlegra þátta í tengslum við geðheilbrigði og þróun geðraskana. Nemendur kynnast leiðum til að verjast streitu og taka á afleiðingum hennar. Einnig er fjallað um ýmsar geðraskanir og helstu meðferðarúrræði við þeim. Meginmarkmið áfangans er að nemendur öðlist skilning á geð­heilsu, geðrækt og eðli geðraskana
    SÁLF2IN05 eða áfangi á öðru þrepi í félagsgreinum
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - geðheilsu og geðröskunum
      - mismunandi nálgun sálfræðinnar á geðheilsu
      - helstu hugtökum og kenningum geðsálfræðinnar
      - framlagi geðsálfræðinnar innan sálfræðinnar og til samfélagsins
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - miðla sérhæfðri færni með því að beita almennum og sértækum vinnubrögðum, verkfærum og aðferðum
      - afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
      - nýta fræðilegan texta á íslensku og erlendu tungumáli
      - miðla fræðilegu efni skýrt og skilmerkilega í ræðu og riti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - vinna úr rannsóknargögnum og leggja á þau mat
      - sýna frumkvæði að raunhæfum lausnum
      - beita skapandi hugsun við lausnamiðað nám
      - meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
      - geta tekið þátt í rökræðum um málefni sem tengjast sálfræðinni
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.