Áfanginn er hugsaður fyrir nemendur sem hafa áhuga á líffræðilegri nálgun í sálfræði. Farið er í gerð og starfsemi taugakerfis, einkum heila og taugafrumna. Hormónakerfið og tengsl hormóna við hegðun eru einnig tekin fyrir. Skynjun, lífeðlislegar undirstöður hennar sem og skynvillur kynntar. Fjallað er um vitund og breytt vitundarstig svo sem: svefn, drauma, dagdrauma, dáleiðslu og vímu af völdum lyfja.
SÁLF2IN05 eða LíFF2LN05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- taugakerfi mannsins og tengslum þess við hegðun, hugsun og tilfinningar - áhrifum umhverfis á heila og taugakerfi - hagnýtu gildi lífeðlislegrar sálfræði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skoða hegðun, hugsun og tilfinningar út frá starfsemi heila- og taugakerfis - átta sig á áhrifum umhverfis á heila og taugakerfi - tjá kunnáttu sína á munnlegan og skriflegan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera sér grein fyrir samspili taugakerfis og hegðunar, hugsunar og tilfinninga - tjá sig skipulega og gagnrýnið um einstaka efnisþætti - afla sér upplýsinga, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér - geta framkvæmt einfalda rannsókn og áttað sig á helstu niðurstöðum
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.