Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1536245351.78

    Líffæra- og lífeðlisfræði íþróttamanna
    ÍÞRF3LL05
    7
    íþróttafræði
    líffæra- og lífeðlisfræði íþróttamanna
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum verður fjallað um starfsemi mannslíkamans með áherslu á bein, vöðva, hjarta og blóðrás og fleiri líffæri og líffærakerfi sem tengjast hreyfingum mannslíkamans. Fjallað verður um bein, bönd og liðamót, liðfleti og liðpoka. Fjallað verður um einstaka vöðva, upptök þeirra, festu og starf ásamt því að farið verður í mismunandi gerðir vöðvaþráða og mismunandi áhrif þjálfunar á þá. Einnig verður farið í skipulagningu þjálfunar íþróttamanna og áætlanagerð. Áhersla verður lögð á að tengja námið við íþróttaiðkun. Í áfanganum verður fjallað um þol, kraft, hraða og liðleika og farið yfir próf/mælingar til að meta þessa þætti.
    Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur.
    ÍÞRF2ÞJ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - hlutverki beinagrindar og hreyfingum helstu liðamóta
      - helstu vöðvum og vöðvahópum líkamans
      - starfsemi hjarta og blóðrásarkerfis
      - starfsemi lungna
      - taugakerfi líkamans
      - skipulagningu þjálfunar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - staðsetja helstu vöðva, bein, bönd og liðamót
      - nota æfingar og leiki til þjálfunar þols, kraft og liðleika
      - mæla þol, kraft og liðleika
      - meta kosti og galla mismunandi þjálfunaraðferða
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - notað nokkrar mismunandi aðferðir við þol-, kraft-, liðleika og tækniþjálfun
      - skipulagt íþróttaþjálfun á markvissan hátt
      - framkvæmt kannanir á þoli, vöðvakrafti og liðleika
      - útbúið þjálfunaráætlun fyrir þol-, styrktar- og liðleikaþjálfun
      - nýtt sér upplýsingatækni við skipulag þjálfunar
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá