Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1536246157.3

    Íþróttir - starfsþjálfun
    ÍÞJÁ3AÐ03
    11
    íþróttaþjálfun
    aðstoðarmaður í íþróttaþjálfun
    Samþykkt af skóla
    3
    3
    Þessi áfangi er hugsaður sem undirbúningur fyrir starf í íþróttastarfi/frístundastarfi hjá íþróttafélögum fyrir börn á aldrinum 4-12 ára. Nemandinn mun setja upp æfingaáætlun í samráði við íþróttaþjálfara/kennara. Hann mun síðan þjálfa/kenna með íþróttakennara eða þjálfara. Æfingaáætlun og kennsla er metin í lok æfingakennslutímabils. Miðað er við 2 æfingar á viku að jafnaði.
    ÍÞRF2ÞJ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - kennslu og þjálfun barna og unglinga á aldrinum 4-12 ára
      - helstu forsendum áætlanagerðar í íþróttum
      - hlutverki íþróttaþjálfara sem fyrirmyndar barna og unglinga
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - leiðbeina börnum og unglingum í í tækniatriðum ýmissa íþróttagreina
      - kynna nýja leiki og æfingar fyrir æfingahóp barna og unglinga
      - hafa jákvæð og örvandi samskipti við æfingahópa sína
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - kennt börnum og unglingum ýmsa leiki og grunnæfingar í íþróttum undir stjórn íþróttakennara/þjálfara
      - haldið uppi aga og virkni í sínum æfingahópi
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá