Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1536315427.55

    Íþróttagrein - blak
    ÍÞRG3BL03
    20
    íþróttagrein
    blak
    Samþykkt af skóla
    3
    3
    Í áfanganum eiga nemendur að læra að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í blaki. Í byrjun verður farið í krakkablak sem er undirstaða undir blakið sjálft. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Farið er yfir reglur í greininni. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallar færni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að leikurinn sé greindur sundur í smáar einingar og leikæfingar. Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur. Nemendur æfa sig að kenna hvort öðru blak og krakkablak.
    ÍÞRF2ÞJ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - krakkablaki og blaki
      - blakreglum
      - ýmsum æfingum sem henta í þjálfun barna í blaki
      - helstu þjálfunaraðferðum í blaki
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - kenna leikfræði blaks
      - beita flautu og dæma blakleiki
      - sýna grunn færni í krakkablaki og blaki
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - útskýra leikfræði blaks
      - meta hvenær er þörf að beita flautu
      - dæma blakleiki
      - skipuleggja þjálfun fyrir börn og unglinga
      - sýna grunnfærni í krakkablaki og blaki
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá