Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1536319016.18

    Íþróttagrein - frjálsar íþróttir
    ÍÞRG3FR03
    21
    íþróttagrein
    frjálsar íþróttir
    Samþykkt af skóla
    3
    3
    Í áfanganum eiga nemendur að læra að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í frjálsum íþróttum. Lögð er áhersla á kennslu byrjenda í flestum greinum frjálsra íþrótta. Farið er yfir reglur í greininni. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallar færni í spjótkasti, kúluvarpi, kringlukasti, hástökki, langstökki, grindarhlaupi, boðhlaupsskiptingum og spretthlaupi. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og æfingar kenndar sem þjálfa grunnatriðin í þessum greinum. Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur. Nemendur æfa sig í að kenna hvert öðru.
    ÍÞRF2ÞJ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - ýmsum greinum frjálsra iþrótta
      - helstu keppnisreglum frjálsra íþrótta
      - ýmsum æfingum sem henta í þjálfun barna
      - helstu þjálfunaraðferðum í kastgreinum, stökkgreinum og hlaupum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - kenna mismunandi greinar frjálsra íþrótta
      - sýna grunnfærni í mismunandi greinum frjálsra íþrótta
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - útskýra leikfræði frjálsra íþrótta
      - skipuleggja þjálfun fyrir börn og unglinga
      - sýna grunnfærni í frjálsum íþróttum
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá