Í áfanganum eiga nemendur að læra að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í handknattleik. Í byrjun verður farið í minnihandbolta sem er undirstaða fyrir leikinn sjálfan. Lögð er áhersla á kennslu í knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Farið er yfir reglur og stefnt að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallar færni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að leikurinn sé greindur sundur í smáar einingar og leikæfingar. Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur. Nemendur æfa sig í að kenna hvort öðru undirstöðuatriði í handknattleik.
ÍÞRF2ÞJ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- innihandbolta og handknattleik - handknattleiksreglum - ýmsum æfingum sem henta í þjálfun barna í handknattleik - helstu þjálfunaraðferðum í handknattleik
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- kenna leikfræði handknattleiks - beita flautu og dæma handknattleik - sýna grunnfærni í handknattleik
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- útskýra leikfræði handknattleiks - kenna leikfræði handknattleiks - beita flautu og dæma handknattleik -skipuleggja þjálfun fyrir börn og unglinga - sýna grunnfærni í handknattleik
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá