Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1536319411.54

    Íþróttagrein - körfuknattleikur
    ÍÞRG3KÖ03
    18
    íþróttagrein
    körfuknattleikur
    Samþykkt af skóla
    3
    3
    Í áfanganum eiga nemendur að læra að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í körfuknattleik. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Farið er yfir reglur í greininni. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallar færni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og æfingar kenndar sem þjálfa grunnatriðin í körfuknattleik. Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur. Nemendur æfa sig að kenna hvort öðru körfuknattleik.
    ÍÞRF2ÞJ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - körfuknattleik
      - körfuknattleiksreglum
      - ýmsum æfingum sem henta í þjálfun barna í körfuknattleik
      - helstu þjálfunaraðferðum í körfuknattleik
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - kenna leikfræði körfuknattleiks
      - beita flautu og dæma körfuknattleik
      - sýna grunnfærni í körfuknattleik
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - kennt leikfræði körfuknattleiks
      - beitt flautu og dæmt körfuknattleik hjá börnum
      - sýnt grunnfærni í körfuknattleik
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá