Í námskeiðinu eru kynnt til sögunnar lykilhugtök og aðferðir í túlkun kvikmynda. Farið verður ítarlega í frásagnaruppbyggingu og sviðsmynd kvikmynda, sem og kvikmyndatöku, klippingu, hljóðvinnslu og tónlist. Ræddar verða ólíkar gerðir kvikmynda og sýnd dæmi um heimildar- og tilraunamyndir auk hefðbundinna leikinna kvikmynda. Með kvikmyndasýningunum verða dregin fram þau sérkenni sem einkenna lesefni hverrar viku og þau rædd sérstaklega. Nemendur vinna einnig stutt greiningarverkefni sem byggja á ólíkum nálgunarleiðum á kvikmyndamiðilinn.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
uppbyggingu og eðli kvikmyndarinnar.
ólíkum gerðum kvikmynda og helstu einkenna þeirra.
ólíkum nálgunarleiðum í greiningu á kvikmyndamiðlinum.
hvernig hægt sé að lesa kvikmyndir og gagnrýna á faglegan hátt.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
fjalla um greiningarviðmið kvikmyndadóma.
greina uppbyggingu og frásögn kvikmyndar.
greina lýsingu og sviðsetningu myndar.
greina klippingu myndar.
greina hljóðvinnslu og tónlist kvikmyndar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fjalla um kvikmyndir í rituðu máli.
beita ólíkum greiningaraðferðum á kvikmyndamiðilinn.
Námsmat byggir á verkefnum nemenda og hvernig þeir standa sig við útfærslu þeirra í tímum. Einnig er tekið tillit til áhuga og ástundunar ásamt útfærslu og frágangi á verkefnum.
Nemendur skila greinargerðum og verkefnum sem eru metin til einkunna. Ferilmappa áfangans (portfólíó) er hluti af lokaeinkunn.