Áframhaldandi kennsla á upptöku- og hljóðvinnsluforrit. Farið er yfir skipulag og undirbúning fyrir tökur á setti. Farið er yfir uppsetningu búnaðar og aðstöðu og hvernig má hámarka gæði upptöku. Farið er yfir hvernig skal bera sig að við upptökur.
Undanfari: KVHL1KT04A
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu þáttum er varðar upptöku hljóðs í setti.
góðum verkferlum í upptökum.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
velja hljóðnema fyrir upptöku í setti.
skipuleggja og framkvæma upptökur í setti.
nýta hljóðbúnað og hljóðvinnsluforrit á sem bestan hátt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
stilla upp hljóðupptöku og vinnslu í setti.
velja réttu tækin eftir aðstæðum.
skila góðu hljóði á tökustað.
eftirvinna hljóð í flóknari verkefnum.
Námsmat byggir á verkefnum nemenda og hvernig þeir standa sig við útfærslu þeirra í tímum. Einnig er tekið tillit til áhuga og ástundunar ásamt útfærslu og frágangi á verkefnum.
Nemendur skila greinargerðum og verkefnum sem eru metin til einkunna. Ferilmappa áfangans (portfólíó) er hluti af lokaeinkunn.