Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1537448000.98

    Stýringar - iðntölvur I
    MSTY4IT03(BA)
    1
    Stýringar
    Iðntölvur
    Samþykkt af skóla
    4
    3
    BA
    Í áfanganum er byggt ofaná þá þekkingu á iðntölvum og búnaði sem nemendur hafa öðlast. Viðfangsefnin eru gerð flæðirita við lausn stýriverkefna og færslu flæðirita í forrit. Þá er fjallað um stöðluð hliðræn merki og forritun þeirra, farið í reikniaðgerðir og forritun í tvíundarorðum. Flæðirit og forrit eru gerð eftir lýsingum, slegin inn og prófuð í iðntölvum tengdum hermum. Einnig eru gerð flæðirit og forrit þar sem fram koma bæði stafræn og hliðræn merki og þau prófuð í iðntölvum tengdum hermum.
    Sveinspróf í rafvirkjun, rafvélavirkjun eða rafveituvirkjun.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • PLC stýringum.
    • iðntölvum og búnaði þeim tengdum.
    • notkun flæðirita.
    • færslu flæðirita í forrit.
    • aðferðum við prófun flæðirita.
    • stöðluðum hliðrænum merkjum og forritun þeirra.
    • prófun stafrænna og hliðrænna merkja.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita kerfisbundnum aðferðum við lausn stýriverkefna.
    • nota og gera flæðirit.
    • færa flæðirit í forrit.
    • hanna og forrita smærri PLC stýringar.
    • prófa forrit.
    • forrita flóknari verkefni þar sem blandað er saman stafrænum og hliðrænum merkjum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • hagnýta þekkingu sína til að gera flæðirit til að leysa stýriverkefni.
    • og forrit þar sem fram koma bæði stafræn og hliðræn merki.
    • nýta sérhæfða þekkingu sína til að gera flæðirit og forrit.
    • hagnýta sér prófanir í iðntölvum tengdum hermum.
    • geta nýtt sér þekkingu sína og leikni á gagnrýnin og uppbyggilegan hátt.
    Námsmat grundvallast á verkefnavinnu nemenda og prófum.