Í þessum áfanga er lögð áhersla á að nemendur kynnist flóknari forritanlegum ljósa- og hússtjórnarkerfum, tilgangi þeirra og möguleikum. Farið er í möguleika forritanlegra raflagnakerfa við stýringu t.d. ljósa, gluggatjalda, hitastigs, loftræstinga, gluggaopnun, vöktun, skráningu og samskipti heimilistækja, síma-, tölvu- og öryggiskerfa. Þá er fjallað um lagnir og forritun þeirra. Nemendur æfa sig í að leggja lagnir og fá þjálfun í að tengja búnað og forrita kerfi, ganga frá þeim og leiðbeina öðrum um notkun þeirra. Þá eru gagnabankar framleiðenda og notkun þeirra kynnt.
Sveinspróf í rafvirkjun, rafvélavirkjun eða rafveituvirkjun.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
uppbyggingu flóknari raflagnakerfa, tilgangi þeirra og möguleikum.
möguleikum ljósa- og hússtjórnunarkerfa og forritun þeirra.
hvernig á að forrita og ganga frá forritanlegum kerfum.
uppbyggingu og notkun gagnabanka framleiðenda.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
fylgja leiðbeiningum og nýta gagnabanka framleiðenda.
leggja lagnir, tengja búnað, forrita kerfi, ganga frá þeim.
leiðbeina öðrum um notkun flóknari forritanlegra raflagnakerfa.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá sig um og leiðbeina öðrum um uppbyggingu forritanlegra kerfa.
nýta sérhæfða þekkingu sína til að leiðbeina öðrum um forritun og notkun kerfa og forritun þeirra.
sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum við flóknari raflagnakerfi.
geta nýtt sér þekkingu sína og leikni tengda raflagnakerfum.
Námsmat grundvallast á forritun og annarri verkefnavinnu nemenda.