Í áfanganum eiga nemendur að læra að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í knattspyrnu. Lögð er áhersla á knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að leikurinn sé greindur sundur í smáar leikæfingar. Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur. Nemendur æfa sig í að kenna hvort öðru.
ÍÞRF2ÞJ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- knattspyrnu - knattspyrnureglum - ýmsum æfingum sem henta í þjálfun barna í knattspyrnu - helstu þjálfunaraðferðum í knattspyrnu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- kenna leikfræði knattspyrnu - beita flautu og dæma knattspyrnuleiki - sýna grunnfærni í knattspyrnu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- útskýra leikfræði knattspyrnu - kenna leikfræði knattspyrnu - beita flautu og dæma knattspyrnu -skipuleggja þjálfun fyrir börn og unglinga - sýna grunnfærni í knattspyrnu
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.