Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1538488046.41

    Afbrotafræði
    FÉLA3AB05
    27
    félagsfræði
    afbrotafræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Afbrotafræði er ein af undirgreinum félagsfræðinnar og styðst við aðferðir félagsvísinda til rannsókna á afbrotum og samfélagslegum viðbrögðum. Í þessum áfanga er farið í sjónarhorn og viðfangsefni afbrotafræðinnar. Skoðaðar verða mismunandi tegundir afbrota og afleiðingar þeirra. Lögð er áhersla á að nemendur fjalli á gagnrýninn hátt um álitamál er tengjast fráviks- og afbrotahegðun og viðbrögðum samfélagsins við þeim.
    FÉLA2BY05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - mismunandi kenningum og sjónarhornum afbrotafræðinnar
      - helstu hugtökum afbrotafræðinnar
      - mismunandi tegundum frávika og afbrota
      - aðferðum sem samfélög beita og hafa beitt til að taka á afbrotum
      - sérstöðu afbrotafræðinnar og skyldleika hennar við aðrar greinar félagsvísinda
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - afla upplýsinga um frávik og afbrot og vinna með þær upplýsingar
      - skoða viðbrögð samfélagsins, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
      - beita helstu hugtökum og kenningum afbrotafræðinnar
      - greina mismunandi tegundir afbrota út frá ólíkum sjónarhornum
      - nota fræðilegan texta á íslensku og erlendu tungumáli
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - geta lagt mat á upplýsingar um frávik, afbrot og viðbrögð samfélagsins við afbrotum
      - tengja umfjöllun fjölmiðla um afbrot við sjónarhorn afbrotafræðinnar (hugtök og kenningar)
      - geta tjáð sig í ræðu og riti um samfélagsleg álitamál er tengjast afbrotum og viðbrögðum samfélagins við þeim
      - vita hvað felst í fræðilegum vinnubrögðum, kunna að leita að heimildum, meta gæði þeirra og vísa rétt í þær
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.