Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1538488376.53

    Stjórnmálafræði
    FÉLA3ST05
    29
    félagsfræði
    stjórnmálafræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Stjórnmálafræðin er kynnt sem fræðigrein. Helstu hugtök og hugmyndafræði hennar kynnt og lögð er áhersla á að nemendur öðlist skilning á helstu hugtökum fræðigreinarinnar. Nemendur læra hvernig túlka má stjórnmálakerfi og stjórnmálaþátttöku út frá mismunandi kenningum með megináherslu á Ísland. Nemendum kynnt helstu hugtök alþjóðastjórnmála og fjallað verður lítillega um alþjóðavæðingu, einkenni hennar og möguleg áhrif á stjórnmál framtíðarinnar.
    FÉLA2BY05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - aðferðum og viðfangsefnum stjórnmálafræðinnar
      - megin hugtökum og kenningum stjórnmálafræðinnar
      - mismunandi hugmyndafræðilegum stjórnmálastefnum
      - íslensku stjórnkerfi og stjórnmálasögu landsins
      - umhverfi og helstu hugtaka alþjóðastjórnmála
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - leggja sjálfstætt mat á stefnur og átakaefni í stjórnmálum
      - beita stjórnmálafræðilegum kenningum til að skoða samfélagsleg málefni
      - fjalla um og bera saman kenningar stjórnmála
      - ræða um viðfangsefni stjórnmála
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - geta myndað sér skoðanir sem byggjast á gagnrýnni hugsun og tekið þátt í umræðum um stjórnmál
      - tjá sig skipulega og gagnrýnið um námsefni
      - afla sér upplýsinga um stjórnmál, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér
      - geta beitt öguðum vinnubrögðum, tekið ábyrgð á námi og unnið í samvinnu við aðra
      - taka virkan þátt í borgaralegu samfélagi
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.