Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1539599883.38

    Grunnteikning I
    GRTE1FA05
    7
    grunnteikning
    grunnteikning 1
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist almenna undirstöðuþekkingu og þjálfun í teiknifræðum. Áfanginn skiptist í tvo meginefnisþætti. Í fyrri efnisþætti er fjallað um fallmyndun en í þeim seinni um ásmyndun og fríhendisteikningu. Í áfanganum er gert ráð fyrir að nemendur öðlist færni í meðferð og notkun mæli- og teikniáhalda, myndrænni vinnu með viðfangsefni starfsgreina, lestri teikninga og fái grunnþjálfun í gerð vinnuteikninga og þrívíðra rissteikninga. Áfanginn er undirbúningur fyrir áframhaldandi nám í teiknifræðum og lestri vinnuteikninga.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • undirstöðu í almennum teiknifræðum
    • lestri teikninga
    • gerð vinnuteikninga
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • útskýra viðfangsefni í formi fríhendisteikninga
    • nota teikni- og önnur mæliáhöld við gerð vinnuteikninga
    • lesa teikningar
    • þjálfist í að hugsa af nákvæmni um og vinna myndrænt með viðfangsefni starfsgreina, svo sem á sviði hönnunar og iðngreina
    • miðla upplýsingum með tæknilegum teikningum
    • gera einfaldar tæknilegar vinnuteikninga
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • hefja nám í fagbundnu teikninámi og öðru fagnámi, svo sem á sviði hönnunar og iðngreina
    • skipuleggja, árita og ganga frá einföldum tæknilegum teikningum og miðla upplýsingum á skilvirkan hátt
    • hefja frekara nám í teiknifræðum
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá