Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1540306442.7

    Þjóðhagfræði
    HAGF3ÞJ05
    5
    hagfræði
    þjóðhagfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Fjallað er um grunneiningar hagkerfisins og samspil þeirra í markaðsþjóðfélagi. Hringrás efnahagslífsins er útskýrð og fjallað um helstu hagstærðir þjóðarbúsins og innbyrðis tengsl þeirra.
    Meginþættir í efnahagsþróun eru teknir fyrir og hagræn vandamál skoðuð með dæmum úr íslensku efnahagslífi.
    Kynnt er margvísleg framsetning á hagfræðilegu efni.
    Nemendur fá þjálfun í að lesa úr línuritum og innsýn í notkun vísitalna, hlutfallareiknings, vegins meðaltals og fleiri algengra aðferða við vinnslu á hagfræðilegum upplýsingum.
    Áhersla er lögð á að nemendur geti hagnýtt sér netið til öflunar hagfræðilegra upplýsinga.
    HAGF2HA05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - útreikningi á markaðsjafnvægi og verðteygni út frá gefnum stæðfræðilegum forsendum um eftirspurn og framboð
      - helstu aðilum og launamyndun á vinnumarkaði
      - hringrás opins og blandaðs hagkerfis
      - ráðstöfunaruppgjöri og útreikningum þjóðhagsstærða
      - umsvifum hins opinbera í efnahagslífinu og aðferða til fjármögnunar þeirra
      - öðlist skilning á efnahagslegu samhengi í þjóðfélaginu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - taka þátt í efnahagsumræðu út frá faglegu sjónarmiði og með gagnrýnni hugsun
      - hagnýta netið á ábyrgan og gagnrýnin hátt
      - nýta netið til öflunar upplýsinga og þekkingar í hagfræði
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - gera sér grein fyrir grunnatriðum þjóðhagfræðinnar
      - tjá sig um grunnatriði þjóðhagfræði á skýran hátt
      - takast á við áframhaldandi nám í hagfræði
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.