Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1540308119.39

    Bókfærsla I
    BÓKF1BA05
    6
    bókfærsla
    bókfærsla
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum er fjallað um bókhaldshringrásina og helstu reglur tvíhliða bókhalds. Fjallað er um grunndvallarhugtökin eignir, skuldir, gjöld og tekjur.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - grundvallarhugtökum tvíhliða bókhalds
      - helstu reglum tvíhliða bókhalds
      - helstu reikningum sem teljast grunnreikningar í fjárhagsbókhaldi
      - helstu lögum um bókhald og virðisaukaskatts
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - hefja bókhald með hliðsjón af fyrirliggjandi efnahagsreikningi eða við stofnun fyrirtækis
      - færa einfaldar dagbókarfærslur
      - stilla upp prófjöfnuði
      - færa viðskiptamannabók samkvæmt skuldunauta- og lánadrottnafærslum í dagbókinni
      - færa niðurstöður dagbókar í aðalbók
      - gera upp viðskipti fyrir ákveðið tímabil
      - gera lagfæringar á bókhaldinu með hliðsjón af einföldum athugasemdum, svo sem varðandi afskriftir, birgðatalningu, fyrirfram greiddan kostnað og ógreiddan kostnað og fleira - setja upp rekstrar- og efnahagsreikning í lok reikningstímabils að teknu tilliti til athugasemda og lokafærslna
      - gera upp virðisaukaskatt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - færa einfalt bókhald undir leiðsögn
      - byggja ofan á grunnþekkingu sína í tvíhliða bókhaldi með frekara námi
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.