Fjallað er um lög, reglugerðir og staðla sem gilda um samskipti byggingarstjóra og meistara við skipulags- og byggingaryfirvöld, eiganda mannvirkis og verktaka. Þekki innkaupareglur opinberra aðila.
Undanfari: A - hluti
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
lögum og reglum um umhverfismál og vinnuvernd.
lögum um mannvirki.
innkaupareglum opinberra aðila.
lögum um byggingavörur.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilgreina stjórnunar- og verkferla.
skilgreina verklagsreglur og vinnuleiðbeiningar.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
rækja skyldur og uppfylla kröfur sem settar eru á iðnmeistara í lögum um mannvirki.