Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1540571942.35

    Efnajafnvægi
    EFNA3CJ05
    29
    efnafræði
    efnajafnvægi
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Viðfangsefni áfangans er jafnvægishugtakið. Jafnvægi í efnahvörfum er skoðað frá ýmsum hliðum en áhersla lögð á jafnvægi í tveimur gerðum efnahvarfa: sýru-basa hvörfum og oxunar-afoxunarhvörfum.
    Nemendur vinna sjálfstætt að framkvæmd og úrvinnslu verklegra æfinga er tengjast viðfangsefnum áfangans.
    EFNA3BB5
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - jafnvægi í efnahvörfum
      - efnafræði sýra og basa og jafnvægi hjá daufum sýrum og bösum
      - efnafræði lausna, jafnalausnum, títrunum og leysnimargfeldi
      - sjálfgengni efnahvarfa, fríorku og tengslum hennar við jafnvægisfastann rafefnafræði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - nota jafnvægisfasta og jafnvægisstyrkja til útreikninga
      - beita útreikningum er tengjast sýrum og bösum
      - reikna út orkubreytingar í efnahvörfum og tengja þær við jafnvægisástand
      - setja upp, framkvæma og vinna úr verklegum æfingum á sjálfstæðan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - sjá tengslin milli náttúrufræðigreina og geta yfirfært þekkingu og leikni á milli þeirra
      - sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
      - leggja rökstutt mat á áreiðanleika rannsóknarniðurstaðna, sinna eigin og annarra
      - taka þátt í rökræðum, mynda sér skoðanir og taka ákvarðanir er lúta að málefnum sem tengjast efnafræði
      - tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi og sjá hagnýtingargildi hennar við lausn flókinna verkefna
      - takast á við frekara nám í efnafræði
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.