Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1540572039.66

    Lífræn efnafræði
    EFNA3CL05
    31
    efnafræði
    lífræn efnafræði og lífefnafræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er farið í grunnatriði lífrænnar efnafræði. Eiginleikar, bygging og flokkun lífrænna efna eru skoðaðir sem og IUPAC-nafngiftakerfið. Einnig er farið yfir tengi lífrænna sameinda, hendni þeirra og helstu efnahvörf lífrænna efna. Áhersla er lögð á notagildi fræðanna, tengingu þeirra við daglegt umhverfi nemenda og undirbúning þeirra undir frekara nám.
    EFNA2AE05, EFNA3BB05 er æskilegur undanfari en ekki nauðsynlegur.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - lögun og tengjum lífrænna sameinda
      - svigrúmablöndun kolefnis, sp, sp2 og sp3 - svigrúmum
      - helstu reglum IUPAC-nafnakerfisins
      - helstu flokkum lífrænna efna, einkennum þeirra og byggingu
      - helstu efnahvörfum lífrænna efna
      - hendni lífrænna sameinda
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - finna og lýsa sp, sp2 og sp3 svigrúmablöndun kolefnis í mismunandi efnasamböndum
      - nota flokkun og nafngiftakerfi lífrænna efna
      - teikna mismunandi rúmísómerur og byggingarísómerur
      - segja til um hendni sameinda
      - skrifa og túlka efnahvörf lífrænna efna
      - afla sér efnafræðilegra upplýsinga frá mismunandi miðlum
      - beita grunnhugtökum lífrænnar efnafræði á skilmerkilegan hátt og í rökrænu samhengi
      - beita einföldum efnafræðilegum aðferðum í verklegum æfingum og skrifa skýrslur
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - leggja mat á áreiðanleika niðurstaðna verklegra æfinga sinna
      - tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar
      - sjá tengsl mismunandi náttúrufræðigreina og yfirfæra þekkingu milli þeirra
      - taka þátt í umræðum um efnafræðileg málefni daglegs lífs á ábyrgan og sjálfstæðan hátt
      - afla sér frekari þekkingar á viðfangsefnum lífrænnar efnafræði
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.