Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1540573145.7

    Veður- og haffræði
    JARÐ3VE05
    4
    jarðfræði
    hafið, jarðvegs- og gróðurbelti, loftslags-, veður, veðurfar
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er fjallað um veður og veðurfar, m.a. geislun, hitafar, raka, úrkomu, loftþrýsting, vinda, veðurspár og veðurfar á Íslandi.
    Einnig er farið í haffræði, m.a. hafsvæði og hafstrauma, hafsbotninn, hreyfingar sjávar og áhrif sjávar á veður og lífsskilyrði.
    Einnig er fjallað um jarðveg og gróðurfar, s.s. gróður- og jarðvegsbelti jarðar, ssérkenni íslensks jarðvegs og gróðurfarsbreytingar, og áhrif gróðurs á veður og veðurfar.
    JARÐ2JÍ05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - lofthjúpi Jarðarinnar, lagskiptingu hans og efnasamsetningu
      - meginflokkum loftslags, ásamt veðurfarslegum og gróðurfarslegum einkennum þeirra
      - veðrakerfum Jarðar
      - helstu sjávarstraumum og helstu áhrifum þeirra á veðurfar
      - helstu flokkum skýja
      - helstu hringrásum í hafinu og eðliseinkennum þeirra
      - helstu gróðurbeltum jarðar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - spá fyrir um veðrabreytingar út frá veðurgögnum og eigin athugunum
      - nota veðurfarsleg gögn við flokkun loftslags
      - nota margvíslegar heimildir og gögn við upplýsingaöflun
      - meðferð tölulegra upplýsinga í töflureikni og að setja þær upplýsingar fram á myndrænan hátt
      - nýta reynslu sína og þekkingu þverfaglega og beita viðeigandi vinnuaðferðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - skýra hvernig veður og loftslag hefur áhrif á umhverfi
      - skýra hvaða kraftar stýra hreyfingum lofts og og áhrifum þeirra á vindhraða og vindstefnu
      - fjalla um ástand sjávar og mikilvægi þess fyrir efnaskipti og blöndun
      - fjalla um tengsl loftslags og gróðurbelta
      - vinna sjálfstætt og miðla þekkingu og leikni með öðrum
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.