Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1540573926.4

    Dýrafræði
    LÍFF3DÝ05
    25
    líffræði
    Dýrafræði, valáfangi á náttúrufræðibraut
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Markmið áfangans er að nemendur kynnist dýraríkinu og dýrafræði með áherslu á spendýr og fugla sem lifa á og við Ísland. Farið er yfir grunnatriði í flokkunarfræði þessara dýra. Líkamsgerð og lífsstarfsemi skoðuð svo og þróunarlegur skyldleiki og atferli. Nánari mörkun viðfangsefnisins, s.s. hvaða dýrategundum eru gerð best skil, er ákveðin af viðkomandi skóla. Verklegar æfingar og vettvangsferðir eru þáttur í náminu.
    LÍFF2EL05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • - sögu dýrafræði og tengslum við aðrar greinar
      - helstu hugtökum dýrafræðinnar
      - aðferðafræði dýrafræðirannsókna
      - sérstöðu fugla og spendýra á Íslandi
      - sjálfbærri nýtingu á stofnum fugla og spendýra
      - líffræðilegum fjölbreytileika
      - helstu rökum fyrir verndun fugla og spendýra á Íslandi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • - lesa upplýsingar um fugla og spendýr úr máli og myndum
      - beita hugtökum dýrafræðinnar í rökrænu samhengi
      - fjalla um álitamál sem varða íslenska náttúru í víðum skilningi
      - greina tegundir fugla og spendýra út i í náttúrunni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • - geta tekið ábyrga og rökstudda afstöðu til dægurmála tengda fuglum og spendýrum á Íslandi
      - tengja undirstöðuþekkingu í dýrafræði við daglegt líf og sjá notagildi hennar
      - fjalla um dýrafræði á gagnrýninn hátt og velta fyrir sér ólíkum sjónarmiðum og lausnum
      - afla sér frekari upplýsinga og þekkingar á dýrafræðilegum viðfangsefnum
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.